Þínar upplýsingar á einum stað
Framtíðarsýn Ísland.is er að einstaklingar geti nálgast alla opinbera þjónustu, rafrænt, á einum stað. Þar er hægt að leysa úr öllum málum er viðkoma sveitarfélögum og stofnunum, hvar og hvenær sem er. Við hjá Norda erum afar stolt af því að hafa verið treyst fyrir því að þróa, í samstarfi við Stafrænt Ísland, Mínar síður sem verða hjarta stafrænnar þjónustu hins opinbera.
Ráðgjöf
Hönnun
Forritun
UX
Mínar síður eru þjónustugátt, þar eiga notendur kost á að geta á einfaldan og aðgengilegan hátt unnið í upplýsingum í tengslum við ríkið. Þar er hægt að nálgast upplýsingar frá Þjóðskrá, opinberar umsóknir, menntasögu og heilsufarsupplýsingar svo fátt eitt sé nefnt.
Mínar síður þjóna að auki því hlutverki að vera gátt fyrir öll verkefni innan Stafræns Íslands sem þarfnast auðkenningar. Verkefnið heldur utan um alla auðkenningu og aðgangsstýringu þaðan sem hægt er að keyra upp önnur verkefni Stafræns Íslands. Með lausninni sparast mikill tími og kostnaður, þar sem ýmis teymi geta skrifað sérhæfðar einingar beint inn í lausnina án þess að þurfa að endurskrifa auðkenningu, aðgangsstýringu og ýmsar aðrar þjónustur.
Norda vann verkefnið í nánu samstarfi við Stafrænt Ísland og hófst verkefnið á ítarlegri greiningu á þáverandi stöðu ásamt úttekt á kerfinu sem skipta átti út. Sú lausn var smíðuð í tækni sem var farin að eldast og kominn tími á allsherjar endurnýjun til að standast kröfur nýrrar tæknistefnu Ísland.is.
Saman mótuðu Norda og Stafrænt Ísland grunnútgáfu af nýjum Mínum síðum sem við teljum að muni þjóna landsmönnum um ókomin ár þar sem lausnin skalast vel, er afar hröð og uppfyllir alla helstu öryggis- og aðgengisstaðla.
Stafrænt Ísland vinnur, í samstarfi við nokkur helstu hugbúnaðarhús landsins, hörðum höndum að endurnýjun allrar opinberrar þjónustu eins og hún leggur sig. Verkefnið er eitt það stærsta í sögu hugbúnaðarþróunar á Íslandi og mun ávinningur þess vera gríðarlegur, bæði fyrir ríkið og fólkið í landinu.
Markmiðið er að gera opinbera þjónustu einfaldari, aðgengilegri og fljótlegri fyrir notendur og starfsfólk. Þó að þessi vegferð sé komin vel af stað og teygi sig inn til ýmissa opinberra stofnana nú þegar þá er hún aðeins rétt að byrja. Það er gríðarlegt verk fyrir höndum en með góðri samvinnu og sterkri framtíðarsýn mun þetta takast og létta landsmönnum lífið til muna.