UX hönnun og viðmótshönnun sem fólk skilur strax
Góð notendaupplifun (UX) hjálpar fólki að klára það sem það kom til að gera, án ruglings, biðar eða óþarfa fyrirhafnar. Fyrir fyrirtæki og stofnanir þýðir það færri fyrirspurnir, skilvirkari þjónustu og ánægðari notendur.
Hjá Norda er UX hönnun og viðmótshönnun ekki sér verkefni sem lýkur áður en forritun hefst. Hönnuðir og forritarar vinna saman alla leið, svo það sem var hannað endi í raun í lausninni.
Hvað gerum við
UX hönnun og viðmótshönnun hjá Norda
Notendarannsóknir
Viðtöl, greining á núverandi lausn og gögnum, og kortlagning á því hvað veldur núningi.
Notendaflæði og frumgerðir
Við teiknum upp ferlin og prófum þau í smellanlegum frumgerðum áður en nokkuð er forritað.
Viðmótshönnun (UI)
Skýrt og fallegt viðmót fyrir vefi, þjónustugáttir og smáforrit, hannað fyrir síma og tölvu.
Hönnunarkerfi
Samræmdar einingar, litir og letur sem gera þróun hraðari og útlitið samræmt þegar lausnin stækkar.
Hvað er UX hönnun?
UX stendur fyrir „user experience“ eða notendaupplifun. UX hönnun snýst um að skilja hverjir nota lausnina, hvað þeir eru að reyna að gera og hvað stendur í vegi fyrir þeim, og hanna síðan ferli sem eru eins einföld og hægt er. Viðmótshönnun (UI) er sá hluti sem notandinn sér: uppsetning, letur, litir, hnappar og texti.
Saman ráða UX og UI því hvort fólk klárar umsóknina, finnur upplýsingarnar eða gefst upp og hringir í staðinn.
Ákvarðanir byggðar á notendum, ekki ágiskunum
Við prófum hugmyndir með raunverulegum notendum snemma í ferlinu. Það er miklu ódýrara að breyta frumgerð en fullsmíðuðum hugbúnaði. Þegar lausnin er komin í loftið nýtum við mælingar og endurgjöf til að halda áfram að bæta hana.
- Greining á núverandi vef eða kerfi og helstu hindrunum
- Notendaviðtöl og notendaprófanir
- Efnisskipulag og síðutré
- Smellanlegar frumgerðir í Figma
- Aðgengi samkvæmt WCAG frá fyrstu skissu
UX fyrir flókna þjónustu
Mesti ávinningurinn af góðri UX hönnun kemur oft þar sem ferlin eru flókin: umsóknir, réttindi, greiðslur, bókanir og Mínar síður. Við höfum hannað slík ferli fyrir Ísland.is, HMS og Kennarasamband Íslands, þar sem markmiðið var að gera flóknar upplýsingar aðgengilegar í einföldu og notendavænu viðmóti.
Ferlið
Svona vinnum við
- 01
Greining
Markmið, notendur, gögn og núverandi lausn. Hvar er núningurinn?
- 02
Rannsóknir
Viðtöl og prófanir með notendum til að staðfesta þarfirnar.
- 03
Frumgerðir
Notendaflæði og smellanlegar frumgerðir sem eru prófaðar og bættar.
- 04
Viðmótshönnun
Endanlegt viðmót og hönnunarkerfi, tilbúið fyrir forritun.
- 05
Mælingar og umbætur
Eftir að lausnin fer í loftið mælum við og höldum áfram að bæta.
Verkefni
Dæmi um verkefni sem við höfum unnið
Algengar spurningar
UX (notendaupplifun) snýst um ferlið í heild: hvort fólk nær markmiði sínu auðveldlega. UI (viðmótshönnun) er sjálft útlitið og uppsetningin sem notandinn sér. Góð lausn þarf hvort tveggja.
Góð notendaupplifun þýðir færri fyrirspurnir, færri villur, hærra hlutfall sem klárar kaup eða umsóknir og ánægðari notendur. Slæm upplifun kostar bæði viðskiptavini og tíma starfsfólks.
Já. Við getum gert UX greiningu á núverandi lausn, fundið hvað veldur núningi og lagt til úrbætur. Oft má ná miklum árangri án þess að byrja frá grunni.
Við hönnum í Figma og vinnum með smellanlegar frumgerðir sem auðvelt er að prófa með notendum og deila með ykkar teymi.
Já, frá fyrstu skissu. Við hönnum samkvæmt WCAG-viðmiðum svo lausnin virki fyrir alla, þar á meðal þá sem nota skjálesara eða lyklaborð.
Lesefni
Hvað segja viðskiptavinir?
Samstarf HMS við Norda hefur gengið mjög vel sem er mikilvægt þar sem verkefnin hafa verið fjölbreytt. Við höfum upplifað að starfsfólk Norda búi yfir mikilli sérfræðiþekkingu við gerð vefsíðna og veflausna og hafa komið með góðar lausnir með það í huga að einfalda líf notenda, sem og starfsfólks HMS.
Eiríkur Örn Þorsteinsson
sérfræðingur í miðlun
Ertu með verkefni í huga?
Ræðum verkefnið




