Hugbúnaðarþróun og sérsmíðaðar lausnir sem einfalda reksturinn

Þegar tilbúin kerfi ná ekki utan um þarfirnar þarf sérsmíðaðan hugbúnað. Norda er hugbúnaðarstofa í Reykjavík sem greinir, hannar og smíðar hugbúnaðarlausnir fyrir fyrirtæki og stofnanir, allt frá innri kerfum og umsóknarferlum til samþættinga við önnur kerfi og smáforrita.

Við höfum tekið þátt í vegferð Stafræns Íslands frá upphafi, unnið ótal verkefni með Reykjavíkurborg og þróað skráningarkerfi fyrir Landsnet sem gefur yfirsýn yfir bilanir í raforkukerfi landsins.

Tölum saman

Hvað gerum við

Hugbúnaðarþróun hjá Norda

Sérsmíðaður hugbúnaður

Kerfi sem passa nákvæmlega við ykkar ferli, gögn og rekstur, í stað þess að laga starfsemina að tilbúnum lausnum.

Samþættingar og tengingar

Við tengjum vefi, þjónustugáttir og innri kerfi saman, til dæmis bókhalds-, félaga-, mála- og greiðslukerfi.

Smáforrit (öpp)

Smáforrit fyrir iOS og Android þegar viðskiptavinir eða starfsfólk þurfa lausnina í vasanum.

Rekstur og áframhaldandi þróun

Hugbúnaður er aldrei „búinn“. Við sjáum um rekstur, viðhald og nýja virkni eftir því sem þarfirnar breytast.

Hugbúnaður sem leysir raunveruleg vandamál

Leit að hugbúnaðarþróun byrjar oftast á rekstrarvanda: handvirk skráning í töflureiknum, upplýsingar sem búa í mörgum ólíkum kerfum, eða ferli sem taka of langan tíma fyrir starfsfólk og viðskiptavini. Við byrjum á því að skilja vandann og hverjir nota lausnina áður en ein lína af kóða er skrifuð.

Þannig verður til hugbúnaður sem fólk notar í raun, en ekki kerfi sem starfsfólkið vinnur í kringum.

Hugbúnaðarlausnir fyrir opinbera aðila og fyrirtæki

Við þekkjum kröfurnar sem gerðar eru til stafrænnar þjónustu hins opinbera: aðgengi, öryggi, persónuvernd og rafræn skilríki. Sama þekking nýtist fyrirtækjum sem vilja bjóða viðskiptavinum sínum upp á sjálfsafgreiðslu og einfaldari ferla.

  • Umsóknar- og skráningarkerfi
  • Innri kerfi og mælaborð fyrir starfsfólk
  • Bókunar- og pöntunarferli
  • Tengingar við Ísland.is, rafræn skilríki og greiðslugáttir
  • Gagnavinnsla og opin gögn, eins og gagnahlaðborð Reykjavíkurborgar

Smáforrit og veflausnir sem vinna saman

Stundum þarf app, stundum dugar vefur sem virkar vel í síma. Við ráðleggjum hvað hentar best og smíðum smáforrit sem deila gögnum og innskráningu með vefnum, svo notendur fá eina samfellda upplifun.

Teymi sem tekur ábyrgð

Hjá Norda vinna forritarar, hönnuðir og verkefnastjórar saman í einu teymi. Við vinnum í stuttum sprettum, sýnum virkan hugbúnað reglulega og prófum jafnóðum. Þannig sjáið þið framvinduna og getið breytt áherslum eftir því sem verkefninu vindur fram.

Ferlið

Svona vinnum við

  1. 01

    Þarfagreining

    Við kortleggjum ferla, notendur, gögn og núverandi kerfi og skilgreinum hvað lausnin þarf að gera.

  2. 02

    Hönnun og frumgerð

    Notendaflæði og viðmót eru prófuð í frumgerð áður en þróun hefst, svo rétt lausn sé smíðuð.

  3. 03

    Þróun í sprettum

    Við smíðum í stuttum sprettum og sýnum virkan hugbúnað reglulega.

  4. 04

    Prófanir og innleiðing

    Sjálfvirkar prófanir, öryggi og álagsþol eru tryggð og lausnin innleidd með starfsfólki.

  5. 05

    Rekstur og þróun

    Við sjáum um rekstur, viðhald og nýja virkni eftir þörfum.

Verkefni

Dæmi um verkefni sem við höfum unnið

Sjá öll verkefni

Algengar spurningar

Þegar tilbúin kerfi kalla á of margar málamiðlanir, mikla handavinnu eða kostnaðarsöm leyfi sem nýtast illa. Sérsmíðaður hugbúnaður passar við ykkar ferli og getur vaxið með starfseminni. Við hjálpum ykkur að meta hvort tilbúin lausn dugi áður en farið er í sérsmíði.

Það fer eftir umfangi verkefnisins. Við mælum með að byrja á þarfagreiningu sem gefur skýra mynd af lausninni og kostnaði. Eftir þarfagreiningu gefum við tilboð eða áætlun.

Já. Samþættingar eru stór hluti af okkar vinnu, til dæmis við bókhalds-, félaga-, mála- og greiðslukerfi, Ísland.is og rafræn skilríki.

Já. Við smíðum smáforrit fyrir iOS og Android og ráðleggjum hvort app eða vel hannaður vefur henti betur fyrir ykkar notendur.

Það er ákveðið í samningi, en almennt eigið þið lausnina sem er smíðuð fyrir ykkur. Við skjölum kóðann og ferlin svo aðrir geti tekið við ef þörf krefur.

Já. Við greinum núverandi kerfi, metum ástand þess og leggjum til hvort best sé að bæta það, endurskrifa hluta þess eða skipta því út í áföngum.

Lesefni

Hvað segja viðskiptavinir?

Samstarfið við Norda hefur gengið mjög vel. Starfsfólk hefur reynst okkur vel, eru fljót að klára verk og gera það vel. Forritarar verkefnisins hafa verið okkar 100% fólk, ávallt tilbúin að hjálpa öðrum teymismeðlimum og fá öll okkar meðmæli.

Bjarni Þór Kjartansson & Perla Þrastardóttir

verkefnastjórar hjá Reykjavíkurborg

Ertu með verkefni í huga?

Ræðum verkefnið