HMS – nýr vefur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Við hönnun og þróun á nýjum vef fyrir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun var lögð áhersla á notendavænt aðgengi að flóknum gögnum. Með innleiðingu á glænýrri fasteignaskrá á HMS síðunni geta notendur nú nálgast ítarlegar upplýsingar um fasteignir sínar á fljótlegan og þægilegan hátt.

Hlutverk
Vefur
Viðskiptavinur
HMS
Ár
2023
Loftmynd af hringtorgi og íbúðahverfi
Forsíða vefs HMS í síma
Fréttir á vef HMS í síma
Lán til einstaklinga á vef HMS í síma
Leiguskrá á vef HMS í síma
Umsóknir og eyðublöð á vef HMS í síma
Leit að umsóknum á vef HMS í síma
Fasteignaskrá HMS með upplýsingum um eign og korti
Valmynd með þjónustuflokkum á vef HMS
Síða um stofnframlög á vef HMS

Bætt upplýsingaflæði úr fasteignaskrá

Lykilatriði í nýjum vef HMS var að bæta við ítarlegri kortalausn sem byggir á Vefsjá landeigna. Notendur geta leitað að fasteignum, skoðað nákvæmar upplýsingar um eignir og óskað eftir endurmati á brunabóta- og fasteignamati beint í gegnum síðuna.

Með því að sameina viðamikil gögn úr fasteignaskrá og notendavænt viðmót höfum við skapað öflugt verkfæri sem einfaldar upplýsingagjöf og bætir þjónustu við landsmenn á einum miðlægum stað.

Forsíða vefs HMS
Upplýsingar um fasteign í fasteignaskrá HMS

Hvað segja viðskiptavinir?

Samstarf HMS við Norda hefur gengið mjög vel sem er mikilvægt þar sem verkefnin hafa verið fjölbreytt. Við höfum upplifað að starfsfólk Norda búi yfir mikilli sérfræðiþekkingu við gerð vefsíðna og veflausna og hafa komið með góðar lausnir með það í huga að einfalda líf notenda, sem og starfsfólks HMS.

Eiríkur Örn Þorsteinsson

sérfræðingur í miðlun