Ísland.is – stafræn þjónusta hins opinbera
Við erum afar stolt af því að hafa frá upphafi tekið þátt í vegferð Stafræns Íslands að aðgengilegri opinbera þjónustu. Í nánu samstarfi við ólíkar stofnanir höfum við þróað fjölmargar lausnir með það að markmiði að einfalda líf landsmanna.
- Hlutverk
- Hugbúnaðarþróun
- Viðskiptavinur
- Ísland.is
- Ár
- 2023










Metnaðarfull stafræn umbreyting
Verkefnin einkennast af ítarlegri greiningu þar sem áhersla er lögð á að nútímavæða tækni og smíða skalanleg kerfi.
Stór hluti af okkar starfi er þróun og viðhald umsóknarkerfisins auk þess sem við höfum smíðað fjölda umsókna í samstarfi við Stafrænt Ísland og ýmsar opinberar stofnanir. Með því að straumlínulaga flókin ferli sköpum við skilvirkari þjónustu, aukum gegnsæi og spörum umtalsverðan tíma og fjármuni til lengri tíma litið.


Hvað segja viðskiptavinir?
“Í vegferð af þessari stærðargráðu er lykilatriði að stór og smá verkefni sem verða til séu unnin af vel samsettum teymum sem hafa breiða sérfræðiþekkingu og getu til þess að greina, brjóta niður og smíða ferli sem standa undir ítrustu gæðakröfum.”
Vésteinn Viðarsson
Vörustjóri Ísland.is
