Vefsíðugerð og vefhönnun fyrir fyrirtæki sem vilja árangur

Góð vefsíða er ekki bara falleg forsíða. Hún er öflugasti sölumaðurinn þinn, opin allan sólarhringinn, og fyrsti staðurinn sem viðskiptavinir, umsækjendur og samstarfsaðilar leita á. Hjá Norda sameinum við vefhönnun, notendaupplifun og forritun í eitt ferli svo nýi vefurinn þinn líti vel út, sé auðveldur í notkun og skili raunverulegum árangri.

Við höfum séð um vefsíðugerð fyrir fyrirtæki og stofnanir á borð við HMS, Samband íslenskra sveitarfélaga, Terra og Lava Show, sem rekur einn söluhæsta ferðaþjónustuvef landsins.

Tölum saman

Hvað gerum við

Vefsíðugerð og vefhönnun hjá Norda

Fyrirtækjavefir

Nýr vefur eða endurhönnun á eldri vef: skýr skilaboð, gott efnisskipulag og vefur sem starfsfólkið getur uppfært sjálft.

Vefhönnun og vefsíðuhönnun

Sérhönnuð útlit sem byggja á vörumerkinu þínu, í stað tilbúinna sniðmáta sem allir aðrir nota.

Vefverslanir

Netverslanir og sölu- og bókunarvefir með greiðslulausnum, birgðatengingum og einföldu kaupferli.

Þjónustu- og upplýsingavefir

Stærri vefir með miklu efni, leit, umsóknum og tengingum við innri kerfi, eins og fyrir stofnanir og félagasamtök.

Vefur sem selur, upplýsir og þjónustar

Fyrirtæki leita sjaldnast að „vefsíðu“. Þau leita að fleiri fyrirspurnum, færri símtölum með sömu spurningunum, betri ásýnd eða einfaldari leið fyrir viðskiptavini til að kaupa, bóka eða sækja um. Þess vegna byrjar vefsíðugerð hjá Norda á markmiðunum, ekki á útlitinu.

Við greinum hverjir heimsækja vefinn, hvað þeir vilja gera og hvað stendur í vegi fyrir þeim. Út frá því mótum við efnisskipulag, notendaflæði og hönnun sem leiðir fólk að réttu svari eða næsta skrefi, hvort sem það er að hafa samband, kaupa eða klára umsókn.

Vefhönnun sem byggir á vörumerkinu þínu

Vefhönnun snýst um meira en liti og letur. Góð vefsíðuhönnun tekur mið af því hvernig fólk les á skjá, hvernig það notar símann sinn og hvað þarf til að það treysti fyrirtækinu. Við hönnum vefi frá grunni út frá vörumerki og markhópi, prófum hönnunina í frumgerðum og fínstillum áður en forritun hefst.

Útkoman er vefur sem enginn annar á, með hönnunarkerfi sem heldur útlitinu samræmdu þegar vefurinn stækkar.

Hraður, aðgengilegur og sýnilegur á Google

Allir vefir sem við smíðum eru hannaðir fyrir síma fyrst, hlaðast hratt og standast kröfur um aðgengi. Það skiptir máli fyrir notendur, en líka fyrir leitarvélar: Google umbunar hröðum og vel uppbyggðum vefjum.

  • Hraði og Core Web Vitals í lagi frá fyrsta degi
  • Aðgengi samkvæmt WCAG-viðmiðum
  • Grunnur fyrir leitarvélabestun (SEO): fyrirsagnir, lýsigögn og skipulögð gögn
  • Vefumsjónarkerfi sem starfsfólk getur notað án hjálpar
  • Mælingar sem sýna hvað virkar og hvað má bæta

WordPress eða sérsmíðaður vefur?

Við veljum tæknina út frá þörfunum en ekki öfugt. Stundum hentar tilbúið vefumsjónarkerfi best, stundum þarf sérsmíðaðan vef sem tengist bókhaldskerfi, félagakerfi eða öðrum innri kerfum. Við förum yfir kosti og galla með þér og mælum með þeirri leið sem kostar minnst að reka til lengri tíma.

Vefverslun sem auðvelt er að kaupa í

Í vefverslun skiptir hvert skref máli. Við hönnum og smíðum netverslanir og bókunarvefi með skýru vöruvali, einföldu kaupferli, öruggum greiðslum og tengingum við birgða- og bókhaldskerfi. Vefur Lava Show er gott dæmi: þar var markmiðið að fanga upplifunina og gera bókunarferlið eins einfalt og hægt er fyrir gesti alls staðar að úr heiminum.

Ferlið

Svona vinnum við

  1. 01

    Greining

    Við förum yfir markmið, markhópa, núverandi vef og samkeppni og skilgreinum hvað nýi vefurinn þarf að gera.

  2. 02

    Efnisskipulag og frumgerð

    Við teiknum upp síðutré og notendaflæði og prófum þau í frumgerð áður en hönnun hefst.

  3. 03

    Vefhönnun

    Sérhannað útlit fyrir síma og tölvu, byggt á vörumerkinu og prófað með raunverulegu efni.

  4. 04

    Forritun og prófanir

    Við smíðum vefinn, tengjum kerfi, setjum upp vefumsjón og prófum hraða, aðgengi og virkni.

  5. 05

    Í loftið og áfram

    Vefurinn fer í loftið með tilvísunum og mælingum, og við höldum áfram að bæta hann eftir þörfum.

Verkefni

Dæmi um verkefni sem við höfum unnið

Sjá öll verkefni

Algengar spurningar

Það fer eftir umfangi, hönnun, virkni og tengingum. Einfaldur kynningarvefur kostar mun minna en stór þjónustuvefur með innskráningu og tengingum við önnur kerfi. Eftir stuttan fund gefum við skriflegt tilboð. Í greininni „Hvað kostar að láta gera vefsíðu?“ förum við nánar yfir hvað ræður verðinu.

Minni fyrirtækjavefir taka yfirleitt nokkrar vikur frá fyrsta fundi þar til vefurinn fer í loftið. Stærri vefir með mörgum sniðmátum og tengingum taka lengri tíma. Við setjum upp skýra tímaáætlun strax í byrjun.

Já. Allir vefir sem við smíðum koma með vefumsjónarkerfi sem er sett upp fyrir ykkar efni, og við kennum starfsfólki á það. Við getum líka séð um uppfærslur fyrir ykkur ef þið viljið.

Já, grunnurinn er alltaf til staðar: hraði, rétt uppbyggðar fyrirsagnir, lýsigögn, skipulögð gögn, veftré og tilvísanir af gamla vefnum svo staðan á Google tapist ekki við flutning.

Já. Við hönnum og smíðum vefverslanir og bókunarvefi með greiðslulausnum og tengingum við birgða- og bókhaldskerfi, allt frá minni verslunum upp í stóra söluvefi.

Við getum séð um hýsingu, rekstur, öryggisuppfærslur og áframhaldandi þróun. Margir viðskiptavinir okkar halda áfram að bæta vefinn með okkur eftir því sem þarfirnar breytast.

Lesefni

Hvað segja viðskiptavinir?

Mig langaði bara að þakka ykkur fyrir frábært samstarf, mér fannst þetta ganga alveg ótrúlega vel og gott að vinna með ykkur öllum. Þetta var langþægilegasta ferli sem ég hef tekið þátt í þegar kemur að því að smíða nýjan vef og ég mun hiklaust mæla með ykkur út um allan bæ.

Grétar Sveinn Theodórsson

samskiptastjóri Sambandsins

Ertu með verkefni í huga?

Ræðum verkefnið