Lava Show – vefur og bókunarferli
Lava Show býður upp á einstaka upplifun með lifandi hrauni og þótti okkur gríðarlega mikilvægt að vefurinn myndi endurspegla þau hughrif. Markmiðið var að fanga frumleika sýningarinnar og gera bókunarferlið eins einfalt og mögulegt er fyrir gesti.
- Hlutverk
- Vefur
- Viðskiptavinur
- Lava Show
- Ár
- 2025










Sjónræn upplifun og hnökralaust bókunarferli
Við hönnun vefsins var lögð áhersla á að miðla því hversu mögnuð sýningin er með hágæða myndefni og hreyfingum sem grípa augað. Vefurinn þjónar alþjóðlegum markaði og því var áhersla lögð á hraða, skýra upplýsingagjöf og einfalt bókunarflæði.
Niðurstaðan er hrífandi og notendavænn vefur sem tryggir að gestir geti skipulagt heimsókn sína á auðveldan hátt, hvort sem er í Reykjavík eða Vík.


Hvað segja viðskiptavinir?
Það er okkur sönn ánægja að mæla með Norda. Teymið hefur átt stóran þátt í að færa stafræna ímynd Lava Show á næsta stig. Vefur Lava Show er að öllum líkindum einn söluhæsti vefurinn í íslenskri ferðaþjónustu og því skiptir máli að allt virki hnökralaust, en þar hefur Norda spilað stórt hlutverk.
Jón Heiðar Ragnheiðarson
sölu- og markaðsstjóri