Landsnet - skráningarkerfi

Í samstarfi við Landsnet þróaði Norda nýjan hugbúnað til að einfalda skráningar og veita nákvæma yfirsýn yfir bilanir í raforkukerfi landsins. Markmiðið var að umbreyta flóknu ferli í notendavæna lausn sem eykur rekstraröryggi.

Hlutverk
Hugbúnaðarlausn
Viðskiptavinur
Landsnet
Ár
2023
Starfsmenn Landsnets við vinnu við háspennulínu
Vinnuflokkur Landsnets reisir háspennumastur
Skráning á skerðingu með tímasetningum og álagi í skráningarkerfi Landsnets
Gluggi fyrir nýja skýrslu í skráningarkerfi Landsnets
Yfirlit yfir atvik og skerðingar í skráningarkerfi Landsnets

Notendaupplifun og einfaldleiki í fyrirrúmi

Hugbúnaðurinn, sem ber heitið Dynkur, einfaldar viðamikið skráningarferli truflana sem áður var tímafrekt og bundið við fáa sérfræðinga. Með áherslu á skýrt viðmót og skilvirka hönnun getur starfsfólk stjórnstöðvar nú skráð tilvik á fljótlegan hátt með hámarks nákvæmni að leiðarljósi.

Norda sá jafnframt um hönnun vörumerkisins, þar sem sóttur var innblástur í íslenska náttúru til að ramma inn kerfið sem heldur utan um margbreytilega þætti raforkukerfisins á einum stað.

Skýrsla um bilun með tímalínu og athugasemdum í skráningarkerfi Landsnets
Skráning á atviki og skerðingu í skráningarkerfi Landsnets