Komdu öflugum þjónustuvef í loftið á nokkrum vikum

Grunnur einfaldar uppsetningu þjónustuvefja með tilbúnum tengingum og stöðluðum einingum. Þannig getur Norda sett upp öflugan þjónustuvef fyrir viðskiptavini á örfáum vikum án þess að byrja frá grunni í hvert skipti.

Hlutverk
Hugbúnaðarlausn
Viðskiptavinur
Grunnur
Ár
2024
Kona skoðar þjónustuvef byggðan á Grunni í tölvu
Almennar stillingar þjónustuvefs í Grunni í síma
Notendalisti í Grunni í síma
Yfirlit yfir félög í Grunni í síma
Reikningar og yfirlit í Grunni í síma
Tölfræði um heimsóknir í Grunni í síma
Upphafssíða Grunns í síma
Kona notar þjónustuvef byggðan á Grunni í síma
Upphafssíða Grunns með yfirliti yfir notendur og reikninga
Innskráning með rafrænum skilríkjum á þjónustuvef byggðum á Grunni
Stillingar þjónustuvefs í Grunni

Minni sérsmíði og meiri skilvirkni

Sem skýjalausn býður Grunnur upp á tilbúnar einingar auk fjölbreyttra auðkenningarleiða og innbyggðrar notendastýringar með sérsniðnum aðgangsréttindum. Tengingar eru tilbúnar við helstu bókhalds- og viðskiptakerfi en einnig er einfalt að tengjast við öðrum kerfum ásamt vöruhúsum gagna. Þessir þættir draga gríðarlega úr kostnaði og tíma við innleiðingu þar sem ekki er þörf á sérsmíði þeirra grunnþátta sem allir þjónustuvefir þurfa á að halda.

Með Grunni geta fyrirtæki boðið viðskiptavinum sínum upp á notendavænan vettvang með greiðum aðgangi að reikningum, hreyfingayfirlitum, samningum og öðrum gögnum á mun hagkvæmari hátt en þegar þjónustuvefir eru smíðaðir frá grunni.

Mælaborð Grunns með reikningum og heimsóknum
Tölfræði um notendur og heimsóknir í Grunni

Hvað segja viðskiptavinir?

Það var ferskur blær að fá upp þjónustugátt á örskotsstundu í stað þess að þurfa að fara í víðtækt þróunarferli. Með Grunni vorum við komin með nýjan og notendavænan þjónustuvef á mikið styttri tíma en við þorðum að vona.

Hildur Emilsdóttir

verkefnastjóri stefnumótunar og umbóta hjá Terra