Mínar síður og þjónustugáttir þar sem viðskiptavinir klára málin sjálfir

Mínar síður og þjónustugáttir gefa viðskiptavinum, félagsmönnum og íbúum yfirsýn yfir sín mál og leyfa þeim að klára þau sjálfir: sjá reikninga, sækja um, breyta upplýsingum og fylgjast með stöðu, hvenær sem þeim hentar.

Norda hefur smíðað Mínar síður og þjónustuvefi fyrir Kennarasamband Íslands, Heima fasteignafélag og Terra. Með Grunni, lausninni okkar fyrir þjónustuvefi, kemst ný þjónustugátt í loftið á nokkrum vikum í stað mánaða.

Tölum saman

Hvað gerum við

Mínar síður og þjónustugáttir hjá Norda

Mínar síður

Innskráð svæði þar sem notendur sjá sín gögn, reikninga, samninga og mál á einum stað.

Þjónustugáttir og sjálfsafgreiðsla

Umsóknir, beiðnir, breytingar og greiðslur sem notendur klára sjálfir, allan sólarhringinn.

Innskráning og öryggi

Innskráning með rafrænum skilríkjum, aðgangsstýringar og meðferð persónuupplýsinga eftir reglum.

Grunnur

Tilbúnar tengingar og staðlaðar einingar sem stytta tímann frá hugmynd að þjónustuvef í loftinu.

Af hverju Mínar síður?

Hvert símtal og hver tölvupóstur með sömu spurningunni kostar tíma. Þegar viðskiptavinir geta sjálfir séð stöðuna, sótt gögn og klárað algengustu málin léttir það á starfsfólki og eykur ánægju. Heimar sáu þjónustuna við sína viðskiptavini stóraukast eftir að nýjar Mínar síður fóru í loftið.

Tengt við kerfin sem þið notið í dag

Mínar síður eru aðeins jafn góðar og gögnin á bak við þær. Við tengjum þjónustugáttir við bókhalds-, félaga-, mála- og greiðslukerfi, svo upplýsingarnar séu alltaf réttar og ferlin klárist sjálfvirkt. Fyrir KÍ leystum við flókið samspil vefs, bókhalds- og félagakerfis og málakerfis.

  • Innskráning með rafrænum skilríkjum
  • Tengingar við bókhalds-, félaga- og málakerfi
  • Rafrænar umsóknir og eyðublöð
  • Greiðslur, reikningar og yfirlit
  • Tilkynningar og staða mála

Hraðar í loftið með Grunni

Grunnur er lausn Norda sem einfaldar uppsetningu þjónustuvefja með tilbúnum tengingum og stöðluðum einingum. Í stað þess að byrja frá grunni í hvert skipti fáið þið öflugan og notendavænan þjónustuvef á nokkrum vikum, sem auðvelt er að byggja ofan á eftir því sem þarfirnar vaxa.

Ferlið

Svona vinnum við

  1. 01

    Greining

    Hvaða mál eiga notendur að geta klárað sjálfir, og hvaða kerfi geyma gögnin?

  2. 02

    UX og hönnun

    Notendaflæði og viðmót sem gera flóknar upplýsingar skýrar.

  3. 03

    Tengingar

    Innskráning, gögn og ferli tengd við ykkar kerfi.

  4. 04

    Prófanir og öryggi

    Prófanir með notendum, öryggisúttekt og meðferð persónuupplýsinga.

  5. 05

    Innleiðing og þróun

    Gáttin fer í loftið og við bætum við virkni eftir þörfum.

Verkefni

Dæmi um verkefni sem við höfum unnið

Sjá öll verkefni

Algengar spurningar

Mínar síður eru innskráð svæði á vef þar sem viðskiptavinir, félagsmenn eða íbúar sjá sín gögn og klára sín mál sjálfir, til dæmis reikninga, umsóknir, samninga og stöðu mála.

Með Grunni getur þjónustuvefur farið í loftið á nokkrum vikum. Sérsniðnar gáttir með mörgum tengingum taka lengri tíma, og við gerum tímaáætlun eftir greiningu.

Já. Innskráning með rafrænum skilríkjum er staðalbúnaður í þeim þjónustugáttum sem við smíðum.

Já. Við tengjum við bókhalds-, félaga-, mála- og greiðslukerfi svo gögnin séu alltaf rétt og ferlin sjálfvirk.

Við fylgjum persónuverndarlögum, notum örugga innskráningu og aðgangsstýringar og gerum öryggisprófanir áður en gáttin fer í loftið.

Lesefni

Hvað segja viðskiptavinir?

Það var kominn tími á nýjar Mínar síður hjá Heimum og fórum við í þá vinnu með Norda. Sjáum sannarlega ekki eftir þeirri ákvörðun.

Allt gekk hratt og örugglega fyrir sig, uppsetning var einföld með Grunni og hefur þjónustan við okkar viðskiptavini stóraukist. Allskonar viðbætur í vinnslu og þá er svo frábært hversu auðvelt að byggja ofan á Grunn - við hlökkum til áframhaldandi þróunar.

Pétur Rúnar Heimisson

markaðs- og þjónustustjóri Heima

Ertu með verkefni í huga?

Ræðum verkefnið