Samband íslenskra sveitarfélaga – nýr vefur

Öflugur vettvangur sem auðveldar upplýsingagjöf og eflir samvinnu sveitarfélaganna. Þar má finna fræðsluefni, fundargerðir, námskeið, mælaborð með tölulegum gögnum og fleira - allt til að bæta aðgengi og yfirsýn.

Hlutverk
Vefur
Viðskiptavinur
Samband íslenskra sveitarfélaga
Ár
2024
Kirkjan í Vík í Mýrdal í snjó
Sveitarfélagaskólinn á vef Sambandsins í síma
Sveitarfélög á Norðurlandi eystra á vef Sambandsins í síma
Forsíða vefs Sambandsins í síma
Val á landshluta á vef Sambandsins í síma
Rekstur sveitarfélaga með línuriti á vef Sambandsins í síma
Húsnæðis- og skipulagsmál á vef Sambandsins í síma
Höfn og bryggja á Íslandi
Forsíða vefs Sambands íslenskra sveitarfélaga
Rekstur sveitarfélaga á vef Sambandsins
Fréttir á vef Sambandsins

Leitarvirkni og upplýsingaflæði lykilatriði

Markmiðið var að bæta aðgengi upplýsinga fyrir starfsmenn sveitarfélaga sem og almenning. Þarfirnar voru skýrar, leitarvirkni skyldi vera með besta móti, vefurinn átti að mæta nútímakröfum varðandi útlit og skölun ásamt því að tengjast ytri þjónustum við birtingu gagna.

Samhliða okkar vinnu fékk vörumerki Sambandsins upplyftingu með ferskari litapallettu, nútímalegra leturvali og fallegum myndum, sem vefsíðan endurspeglar.

Forsíða vefs Sambandsins
Námskeið Sveitarfélagaskólans á vef Sambandsins

Hvað segja viðskiptavinir?

Mig langaði bara að þakka ykkur fyrir frábært samstarf, mér fannst þetta ganga alveg ótrúlega vel og gott að vinna með ykkur öllum. Þetta var langþægilegasta ferli sem ég hef tekið þátt í þegar kemur að því að smíða nýjan vef og ég mun hiklaust mæla með ykkur út um allan bæ.

Grétar Sveinn Theodórsson

samskiptastjóri Sambandsins